Heilbrigðisstofnun Norðurlands vestra

Stórt útlitLítið útlit

Gjaldskrá


GJALDSKRÁ
fyrir heilbrigðis- og mengunarvarnareftirlit á svæði
Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.

1. gr.
Af starfsemi sem háð er starfsleyfi eða eftirliti Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra,
samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum og
reglugerðum settum með stoð í þeim, er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta gjöld
samkvæmt gjaldskrá þessari.
2. gr.
Tímagjald kr. 9.074
Gjald vegna rannsóknar pr. sýni skv. eftirlitsáætlun kr. 12.500
Tóbaksleyfisgjald kr. 10.000

Af eftirlitsskyldri starfsemi er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta árlegt gjald
af starfsemi eins og fram kemur á fylgiskjali, Viðauka A, með gjaldskrá þessari, enda fari
fram reglubundið eftirlit með starfseminni, skv. eftirlitsáætlun.
Sé starfsemi rekin skemur en 6 mánuði á ári eða er að öðru leyti takmörkuð með
svipuðum hætti er heilbrigðisnefnd heimilt að lækka gjaldið.
Ef starfsemi hefur haft samning við faggilta skoðunarstofu síðastliðin fjögur ár, hefur haft
vottað gæðakerfi síðastliðin fjögur ár eða hefur rekið innra eftirlit með starfsemi sinni síðastliðin
fjögur ár, sem heilbrigðisnefnd viðurkennir, er heilbrigðisnefnd heimilt að lækka gjöld
samkvæmt þessari grein.
Ef einungis hluti margþætts eftirlits með starfsemi fer fram, er heimilt að lækka
eftirlitsgjald, sem því nemur.
3. gr.
Af starfsleyfisskyldri starfsemi, er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta gjald
fyrir starfsleyfi eins og hér segir:
Endurnýjun starfsleyfis:
Starfsleyfisgjald eitt og hálft tímagjald
og auglýsingakostnaður ef við á.
Ný starfsemi:
Starfsleyfisgjald eitt og hálft tímagjald
og eftirlitsgjald viðkomandi fyrirtækjaflokks
ásamt auglýsingakostnaði ef við á.
Önnur starfsleyfi sem ekki eru í eftirlitsáætlun:
Starfsleyfisgjald eitt og hálft tímagjald
og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings,
ferðar, úttektar og frágangs,
ásamt auglýsingakostnaði ef við á.

4. gr.
Gjald skv. 3. gr. greiðist við afhendingu leyfisbréfs og reiknast dráttarvextir 15 dögum
eftir útgáfudag reiknings.
5. gr.
Fyrir vottorð sem Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út samkvæmt fyrirliggjandi
gögnum greiðist eitt tímagjald.
Gjald fyrir þjónustuverkefni og önnur sérstök verkefni greiðist samkvæmt reikningi.

Ef um aukin eftirlitsverkefni er að ræða, umfram reglubundið eftirlit og sýnatöku sem
gert er ráð fyrir í eftirlitsáætlun Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra er heilbrigðiseftirlitinu
heimilt að gera sérstakan reikning vegna þeirra, eins og um þjónustuverkefni sé að ræða.
6. gr.
Af starfsemi, sem upp er talin í viðauka með lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og
mengunarvarnir og Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra hefur eftirlit með samkvæmt
samningi við Umhverfisstofnun, skal greiða gjöld samkvæmt 2. gr.
7. gr.
Aðildarsveitarfélögin, eða aðili sem þau tilnefna, annast innheimtu eftirlitsgjalda. Heilbrigðiseftirlit
Norðurlands vestra innheimtir önnur gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, s.s. fyrir
leyfi, vottorð, eiturbeiðnir og þjónustuverkefni.
Heilbrigðiseftirlitið gerir skrá yfir eftirlitsskylda starfsemi í samræmi við Viðauka A sem
fylgir gjaldskrá þessari og sendir viðkomandi aðildarsveitarfélagi.
Um innheimtu gjalda fer samkvæmt 12. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og
mengunarvarnir, með síðari breytingum.
Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.
8. gr.
Gjalddagar gjalda samkvæmt 2. gr. eru 1. júlí eða 1. desember ár hvert. Dráttarvextir
reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtukostnaðar.
9. gr.
Þegar sami aðili rekur fleiri en eina tegund starfsemi sem fellur undir gjaldskrá þessa, á
einum og sama stað, er heimilt að innheimta eitt árlegt gjald, þá í þeim flokki sem hærri er.
10. gr.
Innheimt gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til reksturs heilbrigðiseftirlitsins
skv. 12. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.
11. gr.
Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af aðildarsveitarfélögunum skv. 12. gr. laga
nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum öðlast gildi við
birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1243/2008 fyrir heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit
Norðurlands vestra.

Sauðárkróki, 4. janúar 2010.
F.h. heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis vestra,
Sigurjón Þórðarson framkvæmdastjóri.
ÍSAT-númer Heiti atvinnugreinar Eftirlitsgjald
01.24.01.1 Alifuglarækt 29.491
52.31.0.0 Apótek 22.685
52.31.0.1 Apótek lítil 8.983
52.25.0.0 Áfengisverslun 18.148
90.00.0.9 Áhaldhús sveitarfélags 22.685
15.81.0.2 Bakarí, lítið 41.991
15.81.0.3 Bakarí, miðlungs 71.481
15.81.0.4 Bakarí, stórt 77.129
50.50.0.0 Bensínstöðvar, 31.759
50.50.0.1 Bensínstöðvar, sjálfvirkar 14.745
50.20.0.1 Bifreiða- og vélaverkstæði, lítið ( 1-2 starfsmenn) 13.611
50.20.0.2 Bifreiða- og vélaverkstæði, miðlungs 22.685
50.20.0.3 Bifreiða- og vélaverkstæði, stórt 36.296
50.20.0.7 Bifreiðasprautun 15.880
15.96.0.0 Bjórgerð 36.296
28.52.0.1 Blikksmíði 15.880
01.12.2.0 Blómarækt 15.880
50.20.0.10 Bón- og bílaþvottur, handvirk 5.671
15.81.0.0 Brauðgerð, kleinur o.fl. 11.343
52.46.1.2 Byggingavöruverslanir 22.685
52.46.1.3 Byggingavöruverslanir litlar 11.343
55.23.0.1 Bændagisting, orlofshúsasvæði og önnur ótalin gisting með veitingasölu 45.370
85.32.1.1 Dagmömmur með > 6 börn 5.671
85.11.4.1 Dvalar- og hjúkrunarheimili, minni 49.907
85.11.4.3 Dvalar- og hjúkrunarheimili, stór/með fullbúnu eldhúsi 77.129
92.53.0.1 Dýragarður 12.477
37.20.0.1 Endurvinnsla úrgangs 36.296
93.01.0.2 Efnalaugar 13.611
75.23.0.1 Fangaklefar 24.954
85.32.6.2 Félagsheimili með eldhúsi 44.259
85.32.6.1 Félagsheimili með eldhúsi minni 11.343
52.23.0.4 Fiskbúðir án vinnslu, litlar 35.185
05.02.1.1 Fiskeldi lítið 18.148
05.02.1.3 Fiskeldisstöðvar 36.296
15.20.7.1 Fiskimjölsverksmiðja >500tonn pr. sólarhr. 217.776
55.21.0.1 Fjallaskálar, minni 5.671
63.23.0.2 Flugvellir 17.014
26.61.0.0 Framleiðsla á byggingarefni úr steinsteypu 36.296
15.71.1.0 Framleiðsla á dýrafóðri 34.028
15.61.0 Framleiðsla á kornvörum og pökkun 36.296
25.22.0.0 Framleiðsla á umbúðaplasti 13.611
25.22.0.0 Framleiðsla á umbúðum og efnum sem koma í snertingu við matvæli 13.611
26.13.0 Framleiðsla gleríláta 15.880
15.71.1.1 Framleiðsla gæludýrafóðurs lítil 4.537
26.63.0.1 Framleiðsla tilbúinnar steinsteypu lítil 13.611
80.21.0.1 Fræðslustarfsemi/ skólar- án mötuneytis 22.685
24.20.0.1 Garðaúðun 7.940
90.00.0.4 Gámastöð - stærri flokkun 36.296
90.00.0.41 Gámavöllur, móttaka úrgangs, lítill 18.148
55.12.0.1 Gistiskálar og gistiheimili án veitingasölu, lítið (heimagisting) 13.611
55.12.0.2 Gististaðir án veitingasölu - Stærri 22.685
26.11.0.0 Gleriðnaður, lítill og minni háttar sala varasamraefna 15.880
25.13.0.1 Gúmmívinnsla 7.486
85.32.2.3 Gæsluvellir 5.671
93.02.0.0 Hárgreiðslu- og snyrtistofur 17.014
93.02.0.1 Hárgreiðslustofur 13.611
51.44.2.0 Heildverslun með hreingerningarefni 13.611
51.31.0.1 Heildverslun með matvæli, hreingerningaefni o.fl., lítil 11.343
85.12.1.1 Heilsugæslustöðvar – litlar 22.685
92.62.0.1 Hestaleigur og reiðskólar 8.875
80.10.0.5 Hestamiðstöð 11.343
50.20.0.15 Hjólbarðaverkstæði 11.343
55.11.0.3 Hótel og gististaðir með veitingasölu 85.092
55.11.0.2 Hótel og gististaðir með veitingasölu, minni 54.444
92.61.0.4 Íþróttahús, lítil 22.685
92.61.0.5 Íþróttahús, miðlungs 31.759
92.61.0.6 Íþróttahús, stór 36.296
92.61.0.7 Íþróttavellir 15.880
37.20.0.2 Jarðboranir 34.028
55.40.0.3 Kaffisala (kaffi og kökur) - sumaropið 11.343
91.31.1.1 Kirkjur 5.671
15.20.7.0 Kítín og kítósanframleiðsla 208.702
15.13.0.5 Kjötvinnsla stærri 102.129
15.13.0.1 Kjötvinnsla, lítil 36.154
55.40.0.2 Krár, kaffihús án matsölu 29.491
55.40.0.1 Krár, kaffihús með matsölu 85.092
15.87.0.1 krydd og bragðefnavinnsla lítil 41.991
15.87.0.2 krydd og bragðefnavinnsla miðlungs 58.981
15.87.0.3 krydd og bragðefnavinnsla stór 77.129
15.20.8.0 Lagmetisiðja og framleiðsla sjávarrétta 48.796
19.10.0.1 Leðurvinnsla og sútun 13.611
15.20.8.1 Lagmetisiðja og framleiðsla sjávarrétta lítil 35.185
85.32.2.2 Leikskólar með eldhúsi 49.907
85.32.2.1 Leikskólar með móttökueldhúsi, 36.296
26.21.0.1 Leirmunaverkstæði afkastageta < 75 t/dag og/eða rúmtak ofns < 4m3 15.880
93.04.0.1 Líkamsræktarstöðvar, litlar 27.222
74.81.0.2 Ljósmyndastofur með framköllun 3.686
01.25.2.0 Loðdýrabú lítið 10.208
01.25.2.1 Loðdýrabú stórt 27.222
14.21.0.0 Malar- og sandman 34.028
55.30.1.1 Matsölustaðir, litlir 64.676
55.30.1.2 Matsölustaðir, miðlungs 80.555
55.30.1.3 Matsölustaðir, stórir 89.629
52.11.2.4 Matvöruverslun án vinnslu, litlar 45.370
52.11.2.5 Matvöruverslun án vinnslu, miðlungs 68.055
52.11.2.6 Matvöruverslun án vinnslu, stór 108.888
52.11.2.1 Matvöruverslun með vinnslu 89.629
52.11.2.3 Matvöruverslun með vinnslu, stór 124.814
20.30.9.5 Málningaraðstaða 5.671
85.31.1.0 Meðferðarheimili fyrir börn og unglinga 34.028
15.61.0.2 Meðhöndlun og framleiðsla á kornvörum 29.491
20.20.0.1 Meindýravarnir 11.200
15.51.0.1 Mjólkurbú 175.832
15.51.0.0 Mjólkurbú og ostagerð 242.776
51.57.02 Móttaka brotamáls 31.759
51.57.03 Móttaka úrgangs til endurvinnslu 38.565
55.51.0.1 Mötuneyti með fullbúnu eldhúsi, lítið 48.796
55.51.0.2 Mötuneyti með fullbúnu eldhúsi, miðlungs 62.407
55.51.0.3 Mötuneyti með fullbúnu eldhúsi, stórt 85.092
51.57.01 Niðurrif bifreiða 27.222
93.04.0.9 Nuddstofur 11.343
26.82.9.1 Olíumalar- og malbikunarstöðvar með breytilega staðsetningu 34.028
26.82.9.2 Olíumalar- og malbikunarstöðvar með fasta staðsetningu 45.370
15.51.0.2 Ostagerð 181.480
25.21.0.1 Plastiðnaður 36.296
25.20.00 Plastvöruframleiðsla 24.954
22.22.9.1 Prentiðnaður, lítill 11.343
22.22.9.2 Prentiðnaður, miðlungs 24.954
22.22.9.3 Prentiðnaður, stór 38.565
31.62.0.1 Rafvélaverkstæði 6.806
92.13 Rekstur kvikmyndahúsa 14.745
55.52.0.1 Sala á tilbúnum mat, lítil 35.185
52.49.9.4 Sala eiturefna og hættulegra efna 22.685
15.33.0.2 Salatgerð 85.092
85.31.4.0 Sambýli með heimiliseldhúsi 17.014
15.33.0.4 Samlokugerð, lítil 28.380
85.11.2.0 Sjúkrahús með takmarkaða sérfræðiþjónustu 23.819
85.11.1.3 Sjúkrahús, með fullbúnu eldhúsi 112.314
85.14.1.1 Sjúkraþjálfun 11.343
55.30.2.1 Skemmtistaðir án matsölu 43.102
55.30.2.0 Skemmtistaðir með matsölu 68.055
92.72.0.1 Skotvellir 5.671
85.32.3 Skóladagheimili 36.296
80.10.0.3 Skólar með fullbúnu eldhúsi 62.407
80.10.0.2 Skólar með móttökueldhúsi 36.296
90.00.0.3 Skólphreinsistöðvar 22.685
26.12.0.0 Skurður og vinnsla á glerplötum og rúðugleri 5.104
55.30.1.4 Skyndibitastaðir, litlir 44.259
15.11.0.1 Sláturhús – lítil 34.028
15.11.0.0 Sláturhús stór 79.255
93.02.0.2 Snyrtistofur 13.611
52.33.0.1 Snyrtivöruverslun 22.685
90.00.0.7 Sorpflutningar og sorphirða 40.833
90.00.0.8 sorphaugar 2.fl 235.924
90.00.0.89 sorphaugar 3.fl 181.480
93.04.0.7 Sólbaðstofur 22.685
40.10.0.1 Spennistöðvar 13.611
55.14.0.1 Starfsmannabúður 2000 stæði alisvín eða 750 stæði fyrir gyltur 112.518
01.23.0.1 Svínarækt < 2000 stæði alisvín eða 750 stæði fyrir gyltur 29.491
85.33.6.3 Söfn 11.343
52.11.3.1 Söluturnar án óvarinna matvæla 11.343
52.11.3.2 Söluturnar með óvarin matvæli 24.954
85.13.1.1 Tannlæknastofur 13.611
55.22.0.1 Tjaldstæði, þ. á m. hjólhýsastæði 11.343
80.42.2.0 Tónlistarskólar 5.671
20.30.9.4 Trésmíðaaðstaða 5.671
20.30.9.2 Trésmíðaverkstæði án lökkunar 24.954
20.30.9.3 Trésmíðaverkstæði lítið (1-2starfsmenn) 11.343
20.30.9.1 Trésmíðaverkstæði með lökkun 34.028
17.10.0.1 Ullarþvottastöð 117.962
80.10.0.6 Útihátíð 35.185
41.00.0.5 Vatnsveitur 2.000 - 5.000 íbúa 391.665
41.00.0.6 Vatnsveitur 500 -2.000 íbúa 95.370
41.00.0.8 Vatnsveitur einka m/matvælavinnslu 22.685
41.00.0.7 Vatnsveitur færri íbúar en 500 35.185
55.30.1.7 Veitingavagnar 7.940
50.20.0.14 Verkstæði fyrirtækja 14.745
29.11.0.0 Vélsmíða- og vélaviðgerðaverkstæði 27.222
50.20.0.13 Viðgerðaraðstaða 7.940
15.20.6.1 Vinnsla á fiski, lítil 23.843
15.20.6.2 Vinnsla á fiski, miðlungs 44.259
15.20.6.3 Vinnsla á fiski, stór 71.481
25.21.0.2 Vinnsla með plast- og frauðefni 18.148
25.21.0.3 Vinnsla með trefjaplast 40.833
15.31.0.0 Vinnsla og pökkun á grænmeti 7.486
40.10.0.3 Virkjanir 10-50 MW 49.907
40.10.0.2 Virkjanir 2-10 MW 38.565
40.10.0.4 Virkjanir stærri en 50 MW 108.888
85.11.4.4 Vistheimili 5.671
63.21.0.1 Vöruflutningamiðstöðvar 24.954
63.21.0.0 Vöruflutningamiðstöðvar litlar 11.343
93.01.0.0 Þvottahús og efnalaugar 13.611

Tenglar