Heilbrigðisstofnun Norðurlands vestra

Stórt útlitLítið útlit

Skipulag

Hlutverk heilbrigðisnefnda er skilgreint í lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, en þar segir í 13. gr.:

"Heilbrigðisnefnd ber að sjá um að framfylgt sé ákvæðum laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim, samþykktum sveitarfélaga og ákvæðum í sérstökum lögum eða reglum sem nefndinni er eða kann að vera falið að annast framkvæmd á. Nefndin skal vinna að bættu heilbrigðiseftirliti á svæði sínu, annast fræðslu fyrir almenning og efla samvinnu við önnur yfirvöld og aðila sem vinna að þessum málum".

Heilbrigðisnefnd er samsett þannig að:

"Í hverri nefnd skulu eiga sæti sex menn, fimm kosnir af hlutaðeigandi sveitastjórnum, þar af skal einn vera formaður, og einn tilnefndur af samtökum atvinnurekenda á eftirlitssvæðinu. Atkvæði formanns ræður úrslitum ef atkvæði falla jafnt í nefndinni. Náttúruverndarnefndir sveitarfélaganna á eftirlitssvæðinu eiga rétt á að tilnefna einn fulltrúa í nefndina til viðbótar en hann hefur ekki atkvæðisrétt við afgreiðslu mála í nefndinni. Sömu reglur gilda um varamenn."(11.gr lög nr. 7/1998).

Starfsmenn

Heilbrigðisnefnd

Varafulltrúar í heilbrigðisnefnd